Ástjörn

Gott efni fyrir gamla og nýja Ástirninga

Þessi síða verður uppfærð þegar tími gefst til.
Þakka þér fyrir að koma hér í heimsókn.

Viltu skoða myndir frá Ástjörn? Smelltu þá hér.


Viltu hjálpa?
Við þurfum að auglýsa víða en það kostar peninga og fyrirhöfn.
Vilt þú hjálpa við að auglýsa Ástjörn og hengja upp vegspjald fyrir sumarbúðirnar á góðum stað - eða dreifa bæklingum?
Það væri vel þegið. Láttu okkur vita í síma 462 3980 eða tölvupósti og við sendum þér í pósti.

Hér er hægt að sjá veggspjald fyrir 2022 og hér er önnur útgáfa
og hér og hér eru auglýsingar sem hafa birst í sumar.

Fleyg orð og tilvitnanir

Enginn hefur haldið góða prédikun yfir öðrum nema hann hafi fyrst prédikað yfir sjálfum sér.
- - -
„Sumir halda að Guð vilji ekki láta ónáða sig þegar við erum alltaf að koma og biðja til hans. Það sem ónáðar Guð er þegar við komum alls ekki.“ D. L. Moody
- - -
„Harmleikur lífsins er ekki ósvaraðar bænir, heldur bænir sem ekki voru beðnar.“
F. B. Meyer
- - -


"Orð Guðs er lifandi og kröftugt . . .“
(Heb. 4:12)

Biblían er Orð Guðs. Leyfðu Guði að blessa líf þitt og framtíð þína með því.
Hefur þú lært sum þeirra minnisversa sem eru hér fyrir neðan?
Hér getur þú rifjað upp eða lært einhver af þeim minnisversum sem hafa verið kennd við Ástjörn.
Lærðu eitt minnisvers á dag!

Minnisvers nr. 1
Svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf einkason sinn, til þess að hver, sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf.
Jóh. 3:16
Minnisvers nr. 2
Trú þú á Drottin Jesúm, og þú munt verða hólpinn og heimili þitt.
Post. 16:31
Minnisvers nr. 3
Sálmaskáldið sagði við Drottin:"Ég geymi orð þín í hjarta mínu, til þess að ég skuli eigi syndga gegn þér."
Sálm. 119:11
Minnisvers nr. 4
Jesús sagði: "Ég er ljós heimsins. Sá, sem fylgir mér, mun ekki ganga í myrkri, heldur hafa ljós lífsins."
Jóh. 8:12
Minnisvers nr. 5
Jesús sagði: "Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið. Enginn kemur til föðurins, nema fyrir mig."
Jóh. 14:6
Minnisvers nr. 6
Varpið allri áhyggju yðar á Guð, því að hann ber umhyggju fyrir yður.
1. Pét. 5:7
Minnisvers nr. 7
Ef vér biðjum um eitthvað eftir Guðs vilja, þá heyrir hann oss.
1. Jóh. 5:14
Minnisvers nr. 8
Sérhver, sem trúir á Krist, mun ekki til skammar verða.
Róm. 10:11
Minnisvers nr. 9
Jesús sagði: "Hvað stoðar það manninn að eignast allan heiminn og fyrirgjöra sálu sinni?"
Matt. 16:26
Minnisvers nr. 10
Ég fyrirverð mig ekki fyrir fagnaðarerindið. Það er kraftur Guðs til hjálpræðis hverjum þeim, sem trúir.
Róm. 1:16
Minnisvers nr. 11
Hver sá, sem ákallar nafn Drottins, mun frelsast.
Post. 2:21
Minnisvers nr. 12
Jesús sagði: "Biðjið, og þér munuð öðlast, svo að fögnuður yðar verði fullkominn."
Jóh. 16:24
Minnisvers nr. 13
Fel Drottni vegu þína og treyst honum, hann mun vel fyrir sjá.
Sálm. 37:5
Minnisvers nr. 14
Guð stendur gegn dramblátum, en auðmjúkum veitir hann náð.
1. Pét. 5:5
Minnisvers nr. 15
Jesús sagði: "Biðjið, og yður mun gefast, leitið, og þér munuð finna, knýið á, og fyrir yður mun upp lokið verða."
Matt. 7:7
Minnisvers nr. 16
Öllum þeim, sem tóku við Jesú, gaf hann rétt til að verða Guðs börn, þeim er trúa á nafn hans.
Jóh. 1:12
Minnisvers nr. 17
Sælir eru þeir, sem heyra Guðs orð og varðveita það.
Lúk. 11:28
Minnisvers nr. 18
Guð lítur ekki á það, sem mennirnir líta á. Mennirnir líta á útlitið, en Drottinn lítur á hjartað."
1. Sam. 16:7
Minnisvers nr. 19
Mannssonurinn er kominn að leita að hinu týnda og frelsa það.
Lúk. 19:10
Minnisvers nr. 20
Leitið Drottins, meðan hann er að finna, kallið á hann, meðan hann er nálægur!
Jes. 55:6
Minnisvers nr. 21
Jesús sagði: "Ef þér elskið mig, munuð þér halda boðorð mín."
Jóh. 14:15
Minnisvers nr. 22
Drottinn er minn hjálpari, eigi mun ég óttast. Hvað geta mennirnir gjört mér?
Heb. 13:6
Minnisvers nr. 23
Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegi mínum.
Sálm. 119:105
Minnisvers nr. 24
Sá, sem trúir á soninn, hefir eilíft líf, en sá, sem óhlýðnast syninum, mun ekki sjá lífið, heldur varir reiði Guðs yfir honum.
Jóh. 3:36
Minnisvers nr. 25
Verið fúsir til að fyrirgefa hver öðrum, eins og líka Guð hefir í Kristi fyrirgefið yður.
Efes. 4:32
Minnisvers nr. 26
Ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum, því að yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn í borg Davíðs.
Lúk. 2:10
Minnisvers nr. 27
Sá sem elskar ekki, hefir ekki þekkt Guð, því að Guð er kærleikur.
1. Jóh. 4:8
Minnisvers nr. 28
Jesús sagði: "Þann sem til mín kemur mun ég alls ekki reka burt."
Jóh. 6:37
Minnisvers nr. 29
Sonur Guðs elskaði mig og lagði sjálfan sig í sölurnar fyrir mig.
Gal. 2:20
Minnisvers nr. 30
Treystu Drottni af öllu hjarta, en reiddu þig ekki á eigið hyggjuvit.
Orðskv. 3:5
Minnisvers nr. 31
Jesús Kristur er í gær og í dag hinn sami og um aldir.
Heb. 13:8
Minnisvers nr. 32
Málæðinu fylgja yfirsjónir, en sá breytir hyggilega, sem hefir taum á tungu sinni.
Orðskv. 10:19
Minnisvers nr. 33
Laun syndarinnar er dauði, en náðargjöf Guðs er eilíft líf í Kristi Jesú, Drottni vorum.
Róm. 6:23
Minnisvers nr. 34
Jesús sagði: "Ég er upprisan og lífið. Sá, sem trúir á mig, mun lifa, þótt hann deyi."
Jóh. 11:25
Minnisvers nr. 35
Jesús sagði: "Ég er dyrnar. Ef einhver gengur inn um mig, sá mun hólpinn verða."
Jóh. 10:9
Minnisvers nr. 36
Þér börn, hlýðið foreldrum yðar vegna Drottins, því að það er rétt. Heiðra föður þinn og móður.
Efes. 6:1-2
Minnisvers nr. 37
Guð hefir gefið oss eilíft líf, og þetta líf er í syni hans. Sá, sem hefir soninn á lífið, sá, sem hefir ekki Guðs son á ekki lífið.
1. Jóh. 5:11-12
Minnisvers nr. 38
Gjörið þakkir í öllu, því að það er vilji Guðs með yður í Kristi Jesú.
1. Þess. 5:18
Minnisvers nr. 39
Lítið ekki aðeins á eigin hag, heldur einnig annarra. Verið með sama hugarfari sem Jesús Kristur var.
Fil. 2:5
Minnisvers nr. 40
Jesús sagði: "Hvar, sem fjársjóður yðar er, þar mun og hjarta yðar vera."
Lúk. 12:34
Minnisvers nr. 41
Það orð er satt, og í alla staði þess vert, að við því sé tekið, að Kristur Jesús kom í heiminn til að frelsa synduga menn.
1. Tím. 1:15
Minnisvers nr. 42
Jesús sagði: "Allt, sem þér viljið, að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra."
Matt. 7:12
Minnisvers nr. 43
Jesús sagði: "Yðar himneski faðir veit, að þér þarfnist alls þessa. En leitið fyrst ríkis hans og réttlætis, þá mun allt þetta veitast yður að auki."
Matt. 6:32-33
Minnisvers nr. 44
Jesús sagði:
"Ef þú trúir, munt þú sjá dýrð Guðs."
Jóh. 11:40
Minnisvers nr. 45
Jesús sagði: "Komið til mín, allir þér, sem erfiði hafið og þungar byrðar, og ég mun veita yður hvíld."
Matt. 11:28
Minnisvers nr. 46
Hvaðan kemur mér hjálp? Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara himins og jarðar.
Sálm. 121:2
Minnisvers nr. 47
Margur vegurinn virðist greiðfær, en endar þó á helslóðum.
Orðskv. 14:12
Minnisvers nr. 48
Með hverju getur ungur maður haldið vegi sínum hreinum? Með því að gefa gaum að orði þínu.
Sálm. 119:9
Minnisvers nr. 49
Beinum sjónum vorum til Jesú, höfundar og fullkomnara trúarinnar.
Heb. 12:2
Minnisvers nr. 50
Lát ekki hið vonda yfirbuga þig, heldur sigra þú illt með góðu.
Róm. 12:21
Minnisvers nr. 51
Í þessu er kærleikurinn: Ekki að vér elskuðum Guð, heldur að hann elskaði oss og sendi son sinn til að vera friðþæging fyrir syndir vorar.
1. Jóh. 4:10
Minnisvers nr. 52
Þakkið Drottni, því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu.
Sálm. 107:1
Minnisvers nr. 53
Sæll er sá, er afbrotin eru fyrirgefin, synd hans hulin.
Sálm. 32:1
Minnisvers nr. 54
Mundu eftir skapara þínum á unglingsárum þínum, áður en vondu dagarnir koma og þau árin nálgast, er þú segir um: Mér líka þau ekki.
Préd. 12:1
Minnisvers nr. 55
Þú skalt ekki leggja nafn Drottins Guðs þíns við hégóma, því að Drottinn mun ekki láta þeim óhegnt, sem leggur nafn hans við hégóma.
2. Mós. 20:7
Minnisvers nr. 56
Drottinn er nálægur öllum, sem ákalla hann, öllum sem ákalla hann í einlægni.
Sálm. 145:18
Minnisvers nr. 57
Framar ber að hlýða Guði en mönnum.
Post. 5:29
Minnisvers nr. 58
Jesús sagði: "Sjá, ég stend við dyrnar og kný á. Ef einhver heyrir raust mína og lýkur upp dyrunum, þá mun ég fara inn til hans."
Opb. 3:20
Minnisvers nr. 59
Guði er enginn hlutur um megn.
Lúk. 1:37
Minnisvers nr. 60
Ef vér játum syndir vorar, þá er hann trúr og réttlátur, svo að hann fyrirgefur oss syndirnar og hreinsar oss af öllu ranglæti.
1. Jóh. 1:9
Minnisvers nr. 61
Þeir sem leita Drottins fara einskis góðs á mis.
Sálm. 34:11
Minnisvers nr. 62
Hann var særður vegna vorra synda og kraminn vegna vorra misgjörða. Hegningin, sem vér höfðum til unnið, kom niður á honum.
Jes. 53:5
Minnisvers nr. 63
Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta.
Sálm. 23:1
Minnisvers nr. 64
Heiðra föður þinn og móður þína, eins og Drottinn Guð þinn hefir boðið þér, svo að þú verðir langlífur og svo að þér vegni vel.
5. Mós. 5:16
Minnisvers nr. 65
Jesús sagði: "Hjarta yðar skelfist ekki. Trúið á Guð, og trúið á mig."
Jóh. 14:1
Minnisvers nr. 66
Elskan sé flærðarlaus. Hafið andstyggð á hinu vonda, en haldið fast við hið góða.
Róm. 12:9
Minnisvers nr. 67
Jesús sagði: "Ef þér eruð stöðugir í orði mínu, eruð þér sannir lærisveinar mínir."
Jóh. 8:31
Minnisvers nr. 68
Jesús sagði: "Sælla er að gefa en þiggja."
Post. 20:35
Minnisvers nr. 69
Kristur leið líka einu sinni fyrir syndir, réttlátur fyrir rangláta, til þess að hann gæti leitt oss til Guðs.
1. Pét. 3:18
Minnisvers nr. 70
Jesús sagði: "Ég er brauð lífsins. Þann mun ekki hungra, sem til mín kemur, og þann aldrei þyrsta, sem á mig trúir."
Jóh. 6:35
Minnisvers nr. 71
Guð vill, að allir menn verði hólpnir og komist til þekkingar á sannleikanum.
1. Tím. 2:4
Minnisvers nr. 72
Sá sem gefur gætur að orðinu, hreppir hamingju, og sæll er sá, sem treystir Drottni.
Orðskv. 16:20


Viltu senda okkur bréf eða langar þig til að spyrja okkur um eitthvað?
Ef þú t.d. lest eitthvað sem þú skilur ekki í Biblíunni eða hefur efasemdir þá er þér velkomið að spyrja okkur um það, hvað sem það er. Eða spurningar um unglingamál eða ýmis feimnismál. Eða bara spurningar um lífið og tilveruna og hvað sem þér dettur í hug.


Hér eru góðar sögur úr FRÉTTABRÉFI Ástjarnar.


Föndurhugmyndir og meme til umhugsunar á Pinterest síðu Ástjarnar.


Langar þig að rifja upp SÖNGVA sem þú söngst við Ástjörn?

Hér er Ástjarnarsöngurinn með nótum.


Fróðleikur um Ástjörn

Hér er örlítið um Arthur Gook, stofnanda sumarbúðanna.
Hér er ágrip af sögu sumarbúðanna í hálfa öld (1946-1996).


Ertu bókaormur? Viltu ókeypis bókamerki merkt Ástjörn?
Skrifaðu nafn og heimilisfang þitt hér og við sendum þér það í pósti.


Góðar slóðir fyrir yngri og eldri

Tímaritið Norðurljósið var gefið út í mörg ár. Þar eru mjög vandaðar greinar, sem margar eru enn í fullu gildi. Arthur Gook, sem stofnaði Sumarheimilið Ástjörn, gaf blaðið fyrst út 1912. (Sæmundur G. Jóhannesson tók síðan við því og fleiri).

Erfiðum spurningum svarað: JohnLennox.org

Viltu hlusta á skemmtilega og uppbyggilega kristilega leikþætti á ensku fyrir ungt fólk?
Þættirnir heita Adventures in Odyssey og eru frá fjöskyldusamtökunum Focus on the Family.
Efnið frá Focus on the family er fjölbreytt og tekur yfir öll helstu svið lífsins.

Og hér er góð síða. FamilyTalk (Dr. James dobsson), sem tekur á flestu sem viðkemur fjölskyldumálum, uppeldi og börnum.

Billy Graham er þekktur predikari en hann er líka þekktur fyrir að boða orð Guðs á einfaldan og skýran hátt.
Hér er athyglisvert myndband frá Billy Graham


Efni frá Allen Lambert sumarið 2006

Allen hafði fræðslu um Davíð konung og hinn fræga sálm nr. 23. (Drottinn er minn hirðir)
Hér eru punktar úr efni hans á ensku (3 Word skjöl).
Lesson Plan on David - Lesson Plan on David 2 - Lesson Plan Psalm 23


| Aðalsíða | Hvað og hvar er Ástjörn? | Panta dvöl eða fá upplýsingar | Hvað er hægt að gera við Ástjörn?

Fyrir þá, sem þegar hafa pantað dvöl | Gott efni fyrir "gamla" Ástirninga