Hægt er að tjalda eða koma með tjaldvagn eða hjólhýsi.
Gistiaðstaðan á Sumarbúðunum Ástjörn ber þess eðlilega merki hvernig starfsemi fer þar fram (þ.e. barna- og unglingastarf). Í elsta húsinu, Gamla húsi, eru tveir stórir svefnsalir og eru nokkrar snyrtingar og ein sturta í húsinu. Í næstelsta húsinu, Maríubúð, eru átta lítil herbergi, með tveimur kojum hvert. Snyrtingar eru í húsinu en sturtuaðstaðan er í baðhúsi við hliðina. Nánari upplýsingar veittar í síma 4623980.